Hugum að heilanum í námi og starfi
26.500 kr.
Námskeiðið byggir á starfsmiðaðri hugrænni endurhæfingu (e. employment focused cognitive rehabilitation)
Markmið námskeiðsins er að styrkja hugræna ferla, auka vitund um áhrif ytri þátta á hugarstarf og læra hjálplegar aðferðir til að takast á við hugrænt álag og áreiti í vinnu og námi.
Innihald námskeiðs
Námskeiðið felur í sér 7 fyrirlestra, verkefnabók og aðgang að tölvuforriti. Þátttakandi lærir leiðir til að:
- Auka einbeitingarúthald
- Takast á við félagslegar kröfur og áreiti
- Þekkja sín hugrænu mörk og taka heilahvíld
- Draga úr innri og ytri truflunum
- Finna jafnvægi í hugrænu áreiti
- Undirbúa sig fyrir auknar kröfur á heilann með endurkomu í vinnu og fyrirbyggja bakslög
- Læra á áhrif skynáreitis og leiðir til að aðlaga umhverfi að þörfum
Þátttakandi horfir á fyrirlestra á eigin hraða. Efni fyrirlestra:
- Kynning á námskeiði
- Athygli, minni og einbeitingarúthald
- Endurkoma og bakslög
- Félagslegt áreiti
- Heilaþrek og heilahvíld
- Truflanir
- Streita og skynúrvinnslu
Námskeiðið hentar öllum þeim sem:
- Stefna aftur í nám eða vinnu á næstu vikum/mánuðum
- Eru í hlutastarfi/námi
- Eru byrjaðir að taka sín fyrstu skref aftur út á vinnumarkað eftir hlé
- Vilja auka hugrænt úthald í starfi og námi
- Finna fyrir heilaþoku, vanda með athygli, minni eða einbeitingarúthald óháð orsökum
Fyrirlesari er Dr. Ólína G. Viðarsdóttir, eigandi Heilaheilsu og sérfræðingur í klínískri sálfræði.
Dr. Ólína G. Viðarsdóttir, eigandi Heilaheilsu og sérfræðingur í klínískri sálfræði.