Loading...
Hugum að heilanum í námi og starfi

63.000 kr.

Námskeiðið byggir á starfsmiðaðri hugrænni endurhæfingu (e. employment focused cognitive rehabilitation)

Markmið námskeiðsins er að styrkja hugræna ferla, auka vitund um áhrif ytri þátta á hugarstarf og læra hjálplegar aðferðir til að takast á við hugrænt álag og áreiti í vinnu og námi.

 

Innihald námskeiðs

Námskeiðið er alls 6 vikur og felur í sér netfræðslu, umræður, verkefnavinnu og heilaþjálfun með tölvuforritum.

 

  • 6 hóptímar (90 mínútur) með umræðum og kennslu aðferða til að

o   Auka einbeitingarúthald

o   Takast á við félagslegar kröfur og áreiti

o   Þekkja sín hugrænu mörk og taka heilahvíld

o   Draga úr innri og ytri truflunum

o   Finna jafnvægi í hugrænu áreiti

o   Undirbúa sig fyrir auknar kröfur á heilann með endurkomu í vinnu og fyrirbyggja bakslög

o   Læra á áhrif skynáreitis og leiðir til að aðlaga umhverfi að þörfum

 

  • 7  fyrirlestrar sem þátttakendur horfa á milli tíma. Efni fyrirlestra:
  1.     Kynning á námskeiði
  2.     Athygli, minni og einbeitingarúthald
  3.     Endurkoma og bakslög
  4.     Félagslegt áreiti
  5.     Heilaþrek og heilahvíld
  6. Truflanir
  7. Streita og skynúrvinnsla
  • Aðgangur að tölvuforriti á meðan á námskeiði stendur
  • Verkefnabók

 

 Námskeiðið hentar öllum þeim sem:

  • Stefna aftur í nám eða vinnu á næstu vikum/mánuðum
  • Eru í hlutastarfi/námi
  • Eru byrjaðir að taka sín fyrstu skref aftur út á vinnumarkað eftir hlé
  • Vilja auka hugrænt úthald í starfi og námi
  • Finna fyrir heilaþoku, vanda með athygli, minni eða einbeitingarúthald óháð orsökum

 

Kennari er Dr. Ólína G. Viðarsdóttir, eigandi Heilaheilsu og sérfræðingur í klínískri sálfræði.

 

 

Tímasetning og fyrirkomulag

Námskeiðið fer fram í opnum hópum þar sem þátttakandi getur byrjað þegar það hentar honum best. Gert er ráð fyrir að þátttakandi mæti í sex skipti í röð.

  • Tímabil námskeiðs: 1. október – 5. nóvember 2025
  • Kennt er1x í viku, á miðvikudögum klukkan 10-11:30
Dr. Ólína G. Viðarsdóttir, eigandi Heilaheilsu og sérfræðingur í klínískri sálfræði.