29.900 kr.23.920 kr.
Viltu bæta hugarstarf og heilaheilsu?
Hugræn endurhæfing (cognitive remediation) er atferlismiðuð sálfræðimeðferð með það að markmiði að efla hugarstarf og auka árangur í daglegu lífi og starfi. Meðferðin felur í sér beina þjálfun hugrænna þátta þar sem notast er m.a. við tölvuforrit. Einnig eru kenndar gagnlegar aðferðir til að hámarka hugarstarf í daglegu lífi.
Námskeiðið felur í sér átta fyrirletra um heilann og hugarstarf. Þátttakendur fá aðgang að mínum síðum Heilaheilsu þar sem þeir geta nálgast allt efnið á meðan á námskeiði stendur. Hver fyrirlestur er um 20-30 mínútur. Auk þess er ætlast til þess að þátttakendur þjálfi heilann með tölvuforriti að minnsta kosti 60-100 mínútur á viku. Markviss þjálfun tryggir árangur.
Námskeiðið hentar öllum þeim sem vilja þjálfa hugræna þætti á markvissan hátt, læra meira um heilann og hugarstarf og leiðir til að auka hugrænt úthald í námi og stafi. Námskeiðið er einstaklingsmiðað og því geta allir sótt þessa meðferð, óháð aldri, færni eða hugrænni getu.
Markmið námskeiðs:
- Auka þekkingu á hugrænum þáttum, s.s. athygli, einbeitingu, vinnsluhraða og/eða hvaða hlutverki þeir spila í okkar daglega lífi.
- Auka þekkingu á hugrænum vanda
- Auka þekkingu á eigin hugrænu styrkleikum og veikleikum
- Bæta hugarstarf með þjálfun
- Læra minnis- og skipulagstækni
Innifalið í námskeiði er:
- Aðgangur að tölvuforriti í 12 vikur
- Aðgangur að 8 netfyrirlestrum um heilann, hugarstarf, hugrænan vanda, truflanir, heilahvíld, minnis- og skipulagstækni, heilaþrek og heilaheilsu.
- Verkefnabók
Fyrirlesari: Dr. Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir, sérfræðingur í klínískri sálfræði og eigandi Heilaheilsu. Ólína hefur sérhæft sig í mati og meðferð hugræns vanda.

