Thelma SmáradóttirSálfræðingur

Thelma sinnir meðferð fullorðinna og ungmenna. Hún sinnir meðferð við kvíða, þunglyndi, lágu sjálfsmati, áfallastreitu og ýmsum tilfinningavanda.

Menntun og störf
Thelma stundaði nám við Háskólann í Reykjavík og lauk þaðan BSc í sálfræði árið 2017 og MSc í klínískri sálfræði árið 2020. Í náminu hlaut Thelma fjölbreytta klíníska reynslu undir handleiðslu reyndra sálfræðinga. Starfsnám hennar fór fram hjá transteymi Landspítalans, Kvíðameðferðarstöðinni og Sálstofunni. Í starfsnáminu tók hún þátt í hópmeðferðum við félagskvíða, prófkvíða og kulnun í starfi.

Thelma hefur öðlast þjálfun og reynslu í gagnreyndu meðferðarúrræði sem kallast Díalektísk atferlismeðferð (DAM). DAM meðferð byggir á fjórum grunnþáttum: Núvitund, tilfinningastjórn, samskiptafærni og streituþol. Áhersla er lögð á aukna meðvitund um hugsanir, tilfinningar og líkamleg viðbrögð, bættri samskiptafærni og færni í tilfinningastjórn.

Samhliða starfi sínu hjá Heilaheilsu vinnur hún sem sálfræðingur í DAM teymi Landspítalans. Þar sinnir hún bæði einstaklingsviðtölum og hópmeðferðum.

Rannsóknir
Prevalence and Effects of Antidepressants during Pregnancy on Infant Outcomes among Women in Iceland, MSc lokaverkefni: Háskólinn í Reykjavík

Áhugamál

Áhugamál Thelmu eru samvera og ferðalög með fjölskyldunni, hreyfing og útivist. Hún stundaði knattspyrnu í mörg ár á sínum yngri árum en stundar hlaup og líkamsrækt í dag. Hún stundar einnig skíði og snjóbretti þegar tími gefst.

Senda skilboð til Thelmu

0