Ólína Guðbjörg ViðarsdóttirSérfræðingur í klínískri sálfræði, PhD.

Menntun og störf

Ólína lauk BA prófi í sálfræði frá University of Richmond og kandidatsprófi frá Háskóla Íslands árið 2009. Ólína fékk starfsleyfi á Íslandi og Svíþjóð árið 2009. Í Svíþjóð vann Ólína á sjúkrahúsinu í Örebro 2010-2013 á deild fyrir fólk með áfengis- og vímuefnavanda. Hún flutti heim til Íslands 2013 og hóf störf á Landspítala. Ólína lauk doktorsprófi í líf- og læknavísindum árið 2020 þar sem hún rannsakaði hugræna getu og endurhæfingu ungs fólks eftir geðrof.

Ólína fékk sérfræðiviðurkenningu í klínískri sálfræði árið 2021.

Ólína hefur haldið námskeið víða og sinnt kennslu við HÍ, HR og Endurmenntun. Hún hefur einnig sinnt handleiðslu og fræðslu fyrir fagaðila og fyrirtæki. 

Samhliða starfi sínu hjá Heilaheilsu starfar Ólína sem sálfræðingur og verkefnastjóri á Landspítala.

 

Rannsóknir

Vidarsdottir, O.G., Haftorsdottir, H., Brynjarsdottir, BB., Magnusdottir, BB. (manuscript in preparation). Metacognitive training for early psychosis: A randomized controlled trial.

Vidarsdottir, O.G., Roberts, D.L., Twamley, E.W., Gudmundsdottir, B., Sigurdsson, E., &

Magnusdottir, B.B. (2021) Case report: Successful implementation of Integrated Cognitive Remediation into an EIS service in Iceland. Frontiers in psychiatry. https://doi.org/10.3389/fpsyt.2020.624091 

Vidarsdottir, O.G., Roberts, D.L., Twamley, E.W., Gudmundsdottir, B., Sigurdsson, E., & Magnusdottir, B.B. (2020). Integrative Cognitive Remediation for early psychosis: A 12-month follow-up. Psychiatry Research, 288, 112964.

Vidarsdottir, O.G., Roberts, D.L., Twamley, E.W., Gudmundsdottir, B., Sigurdsson, E., & Magnusdottir, B.B. (2019). Integrative Cognitive Remediation for early psychosis: Results from a randomized controlled trial. Psychiatry Research, 273, 690-698.

Vidarsdottir, O.G., Twamley, E.W., Roberts, D.L., Gudmundsdottir, B.,Sigurdsson, E., & Magnusdottir, B.B. (2019). Social and non-social measures of cognition for predicting self-reported and informant-reported functional outcomes in early psychosis. Scandinavian Journal of Psychology, 60, 295-303.

 

Áhugamál

Ólína á áralangan knattspyrnuferil að baki þar sem hún spilaði með A-landsliðinu og sem atvinnumaður erlendis. Ferli hennar lauk árið 2013 eftir heilahristing og hefur persónulega reynslu af því að lenda í höfuðáverka. Hún hefur enn mikinn áhuga á fótbolta þrátt fyrir að vera hætt að spila og styður börnin sín frá hliðarlínunni. Ólína nýtur þess að vera með fjölskyldu og vinum, syngja í kór, dansa og stunda útivist.

Senda skilboð til Ólínu

0