[vc_row][vc_column]

Loading...
Allt um heilahristing

19.900 kr.

Ertu með langvarandi einkenni heilahristings?

Þekking á heilahristingi og skilningur á þáttum sem viðhalda einkennum er lykilatriði í árangursríkri meðferð eftir heilahristing. Fræðslan er gagnlegt öllum þeim sem hafa fengið heilahristing fyrir vikum, mánuðum eða árum síðan og eru enn með einkenni. Fræðslan er mikilvægur þáttur í bataferlinu og gefur hagnýtar upplýsingar sem þátttakandi getur nýtt sér strax í sinni meðferð. Auk þess getur fræðslan verið gagnleg aðstandendum þeirra sem hafa fengið höfuðáverka sem og fagfólki sem vinnur með fólki sem glímir við afleiðingar höfuðáverka.

Í fræðslunni er m.a. fjallað um: 

  • Hvað gerist í heilanum við heilahristing?
  • Af hverju sumir þróa með sér langvarandi einkenni og aðrir ekki?
  • Áhrif á taugakerfið, hormón og hjarta- og æðakerfið
  • Bólgumyndun og efnaskipti
  • Truflun í sjónkerfi og jafnvægiskerfi
  • Náin sambönd og kynlíf eftir heilahristing
  • Aftur til náms/vinnu/leiks eftir heilahristing
  • Svefn eftir heilahristing
  • Árangursrík meðferð við langvarandi einkennum

 

Aðgangur að efninu er opinn í sex mánuði og getur þátttakandi horft efnið á eigin hraða

Innifalið í verði er einnig meðferðarhandbók

Fyrirlesari: Dr. Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir, sérfræðingur í klínískri sálfræði. Ólína hefur sérhæft sig í mati og meðferð heilahristingseinkenna

„Fræðslan var mjög gagnleg, ekki aðeins fyrir mig heldur einnig fyrir maka minn sem tók þátt. Ég hafði leitað hátt í ár að einhverjum til að aðstoða mig með mín einkenni. Það var því mjög hughreystandi að hlusta á fagaðila telja upp öll þau einkenni sem hafa verið að há mér og fá staðfestingu á því að þau eru eðlileg og hægt sé að vinna sig í gegnum þau.“ – umsögn þátttakanda

Dr. Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir, sérfræðingur í klínískri sálfræði.
[/vc_column][/vc_row]