Thelma hefur öðlast þjálfun og reynslu í gagnreyndu meðferðarúrræði sem kallast Díalektísk atferlismeðferð (DAM). DAM meðferð byggir á fjórum grunnþáttum: Núvitund, tilfinningastjórn, samskiptafærni og streituþol. Áhersla er lögð á aukna meðvitund um hugsanir, tilfinningar og líkamleg viðbrögð, bættri samskiptafærni og færni í tilfinningastjórn. Thelma vann hjá DAM teymi Landspítala á árunum 2021 - 2023.
Samhliða starfi sínu hjá Heilaheilsu vinnur hún sem sálfræðingur hjá Pieta samtökunum Þar sinnir hún bæði einstaklingsviðtölum og hópmeðferðum.