Ingólfur hefur starfað sem sálfræðingur á geðsviði Landspítalans frá 2021. Eitt ár starfaði hann við að veita fólki með geðhvarfa- og geðrofssjúkdóma sálfræðimeðferð, en lengst af hefur Ingólfur starfað í DAM-teyminu á Landspítalanum þar sem veitt er Díalektísk atferlismeðferð (DAM) fyrir einstaklinga með alvarlegan tilfinningavanda. Meðferðin byggir á fjórum grunnþáttum: aukinni vitund um hugsanir og tilfinningar (núvitund), tilfinningastjórn, samskiptafærni og streituþol.
Samhliða starfi sínu hjá Heilaheilsu starfar Ingólfur sem sálfræðingur í DAM-teymi Landspítalans. Þar sinnir hann bæði einstaklings- og hópmeðferð.