Aníta Ósk Georgsdóttir
SÁLFRÆÐINGUR

Aníta sinnir meðferð fullorðinna og ungmenna. Hún sinnir hugrænni endurhæfingu og meðferð hugræns vanda (s.s. minni, vinnsluminni, athygli og stýrifærni) vegna hrörnunarsjúkdóma, kvilla/raskana í miðtaugakerfi eða eftir höfuðáverka. Auk þess sinnir hún meðferð kvíða, þunglyndi, lágu sjálfsmati og átröskunum.

Bóka viðtal

Hleð inn ...
1

Menntun

Aníta Ósk Georgsdóttir útskrifaðist með BSc gráðu í sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2019 og með MSc gráðu í klínískri sálfræði frá Háskóla Íslands árið 2021. Aníta hlaut víðtæka klíníska þjálfun í námi sínu undir handleiðslu reyndra sálfræðinga í Sálfræðiráðgjöf háskólanema sem og á Reykjalundi. Samhliða námi starfaði Aníta við vísindarannsóknir, flestar á sviði taugasálfræði. Eftir útskrift úr MSc námi í klínískri sálfræði hóf Aníta störf á Minnismóttöku Landspítalans þar sem hún sinnti taugasálfræðilegu mati.

Aníta sinnti rannsóknum í Svíþjóð við Karolinska sjúkrahúsið árið 2024 og hefur nú hafið doktorsnám við Háskólann í Reykjavík.

Starfsreynsla

Aníta hefur öðlast þjálfun og reynslu í Hugræn atferlismeðferð (HAM). Hugræn atferlismeðferð byggir á þeirri grundvallarforsendu að hugsun okkar hafi veruleg áhrif á líðan okkar og hegðun. Einnig hefur Aníta öðlast þjálfun í Acceptance and Commitment Therapy (ACT) en sú meðferð á rætur sínar að rekja til HAM. ACT byggir á
þeirri hugmyndafræði að fólk geti öðlast bætta líðan með því að sættast við eigin hugsanir og tilfinningar og að það geti lifað lífi sínu í samræmi við eigin lífsgildi með því að hafa áhrif á hegðun.

Rannsóknir og greinar

Software Database of Sigla 3.3: Detecting At-Risk Individuals for Cognitive Decline Utilising Lifestyle Indices, Health-Related Factors, Neuropsychological Measures and Electroencephalographic Data, M.Sc. lokaverkefni: Háskóli Íslands

Ívarsson, E. o.fl. (2019, 26.-28. september). A novel technique to trigger high beta and low gamma activity in patients with schizophrenia. Í: Henriques, J., Neves, N. og de Carvalho, P. (ritsj.), XV Mediterranean Conference on Medical and Biological
Engineering and Computing – MEDICON 2019 (bls. 1064-1070), Coimbra, Portúgal. https://doi.org/10.1007/978-3-030-31635-8_129

Áhugamál

Áhugamál Anítu eru samvera og ferðalög með fjölskyldu og vinum, innanhúshönnun, tónlist og hreyfing