Ásvaldur starfaði sem ráðgjafi á Sérhæfðri endurhæfingargeðdeild Landspítalans á árunum 2021-2022. Frá árinu 2022 hefur hann starfað sem sálfræðingur á geðsviði Landspítalans. Þar veitir hann sálfræðimeðferð við ýmiss konar og fjölþættum vanda, bæði í einstaklingsviðtölum og hópmeðferðum. Einnig vinnur hann náið með aðstandendum þeirra sem fá þjónustu geðsviðs Landspítalans. Þar að auki veitir hann þjónustuþegum, aðstandendum og starfsfólki ýmiss konar fræðslu og þjálfun sem viðkemur geðheilsu og meðferð við geðrænum vanda.
Ásvaldur hefur hlotið þjálfun og reynslu í Hugrænni atferlismeðferð (HAM/CBT) við ýmsum vanda, hugrænni úrvinnslumeðferð (HÚM/CPT) við áfallastreitu og áhugahvetjandi samtali (MI).