Ásvaldur Sigmar Guðmundsson
Sálfræðingur

Ásvaldur sinnir greiningu og meðferð fullorðinna og ungmenna við kvíðaröskunum, þunglyndi, áfallastreitu, lágu sjálfsmati, geðrofseinkennum, fíknivanda og öðrum tilfinningalegum vanda.

Bóka viðtal

Hleð inn ...
Ási_mynd svarthvít

Menntun

Ásvaldur lauk BSc námi í sálfræði árið 2020 og MSc námi í klínískri sálfræði frá Háskóla Íslands árið 2022. Í námi sínu hlaut hann víðtæka klíníska þjálfun undir handleiðslu reyndra sálfræðinga í Þunglyndis- og kvíðateymi Landspítalans sem og Sálfræðiráðgjöf háskólanema.

Starfsreynsla

Ásvaldur starfaði sem ráðgjafi á Sérhæfðri endurhæfingargeðdeild Landspítalans á árunum 2021-2022. Frá árinu 2022 hefur hann starfað sem sálfræðingur á geðsviði Landspítalans. Þar veitir hann sálfræðimeðferð við ýmiss konar og fjölþættum vanda, bæði í einstaklingsviðtölum og hópmeðferðum. Einnig vinnur hann náið með aðstandendum þeirra sem fá þjónustu geðsviðs Landspítalans. Þar að auki veitir hann þjónustuþegum, aðstandendum og starfsfólki ýmiss konar fræðslu og þjálfun sem viðkemur geðheilsu og meðferð við geðrænum vanda.

Ásvaldur hefur hlotið þjálfun og reynslu í Hugrænni atferlismeðferð (HAM/CBT) við ýmsum vanda, hugrænni úrvinnslumeðferð (HÚM/CPT) við áfallastreitu og áhugahvetjandi samtali (MI).

Rannsóknir og greinar

Reducing intrusive memories of trauma with a remotely delivered mental imagery competing intervention: An exploratory pilot randomised controlled trial, MSc lokaverkefni: Háskóli Íslands

Áhugamál

Áhugamál Ásvaldar eru tónlist, hreyfing, ferðalög innan- og utanlands, myndbandagerð og að verja tíma með fjölskyldu og vinum.