Loading...
Hugum að heilanum í námi og starfi

26.500 kr.

Námskeiðið byggir á starfsmiðaðri hugrænni endurhæfingu (e. employment focused cognitive rehabilitation)

Markmið námskeiðsins er að styrkja hugræna ferla, auka vitund um áhrif ytri þátta á hugarstarf og læra hjálplegar aðferðir til að takast á við hugrænt álag og áreiti í vinnu og námi.

Innihald námskeiðs

Námskeiðið felur í sér 7 fyrirlestra, verkefnabók og aðgang að tölvuforriti. Þátttakandi lærir leiðir til að:

  • Auka einbeitingarúthald
  • Takast á við félagslegar kröfur og áreiti
  • Þekkja sín hugrænu mörk og taka heilahvíld
  • Draga úr innri og ytri truflunum
  • Finna jafnvægi í hugrænu áreiti
  • Undirbúa sig fyrir auknar kröfur á heilann með endurkomu í vinnu og fyrirbyggja bakslög
  • Læra á áhrif skynáreitis og leiðir til að aðlaga umhverfi að þörfum

Þátttakandi horfir á fyrirlestra á eigin hraða. Efni fyrirlestra:

  1.     Kynning á námskeiði
  2.     Athygli, minni og einbeitingarúthald
  3.     Endurkoma og bakslög
  4.     Félagslegt áreiti
  5.     Heilaþrek og heilahvíld
  6.     Truflanir
  7.     Streita og skynúrvinnslu

 

 Námskeiðið hentar öllum þeim sem:

  • Stefna aftur í nám eða vinnu á næstu vikum/mánuðum
  • Eru í hlutastarfi/námi
  • Eru byrjaðir að taka sín fyrstu skref aftur út á vinnumarkað eftir hlé
  • Vilja auka hugrænt úthald í starfi og námi
  • Finna fyrir heilaþoku, vanda með athygli, minni eða einbeitingarúthald óháð orsökum

 

Fyrirlesari er Dr. Ólína G. Viðarsdóttir, eigandi Heilaheilsu og sérfræðingur í klínískri sálfræði.

Dr. Ólína G. Viðarsdóttir, eigandi Heilaheilsu og sérfræðingur í klínískri sálfræði.